All official European Union website addresses are in the europa.eu domain.
See all EU institutions and bodiesGerðu eitthvað fyrir plánetuna okkar, prentaðu einungis þessa síðu ef þú þarft þess. Jafnvel lítil aðgerð getur haft gríðarleg áhrif ef milljónir manna gera hið sama!
News
Stefnur Evrópusambandsins um hringrásarhagkerfi hafa verið efldar á undanförnum árum, en þær þurfa samt að verða bindandi og markvissari til að hraða upptöku endurnýtingarhagkerfis í Evrópu. Þetta felur í sér að taka á auðlindanotkun með beinum hætti og stíga út fyrir þá miklu áherslu sem nú er á förgun úrgangs. Ávinningurinn af því að setja framtíðarmarkmið um nýtingu auðlinda eða hugsanlegar leiðir til að flýta fyrir umskiptum yfir í hringlaga líkan er útskýrt í skýrslu Umhverfisstofnunar Evrópu „
“ (Hröðun hringrásarhagkerfis í Evrópu — ástand og horfur 2024).Þróun hringrásarhagkerfis er mikilvægur hluti af viðleitni Evrópusambandsins til að takast á við loftslagsbreytingar, tap á líffræðilegum fjölbreytileika og mengun. Í skýrslu EEA má sjá alhliða greiningu á því hvernig ESB gengur í umskiptum yfir í hringrásarhagkerfi ásamt stefnumótun sem fæst með Græna samningi ESB og valkostum og horfum til að flýta ferlinu enn frekar.
Lönd í Evrópu reyða sig að miklu leiti á náttúruauðlindir til að verða úti um hráefni, mat og eldsneyti en það hefur mikil áhrif á umhverfið og loftslagið. Hins vegar, eftir mikla aukningu á auðlindanotkun í fortíðinni, hefur sú þróun haldist stöðug undanfarin ár, segir í skýrslunni. Vart hefur orðið við hóflega aftengingu auðlindanotkunar innan ESB ríkja frá hagvexti, þar sem heildarnotkun efna minnkar lítillega á meðan verg landsframleiðsla innan ESB hefur aukist. Hins vegar hefur Evrópa á sama tíma orðið háðari alþjóðlegum innflutningi til að útvega mikilvæg hráefni og notkun málmgrýtis og jarðefnaeldsneytis er að aukast þátt fyrir enn flóknari samspils á milli þjóða og ólíkra hagsmuna þeirra.
ESB hefur gert ráðstafanir til að gera ríkjum kleift að skipta yfir í hringrásarhagkerfi sem felur í sér að færast frá núverandi „línulegum“ framleiðslulíkönum og neyslumynstrum. Þessi umbreyting er sett fram í aðgerðaáætlun um hringrásarhagkerfi, en aðgerðaáætlunin er einn af lykilþáttum Græna samningsins í Evrópu. Á undanförnum árum hafa orðið jákvæðar framfarir í átt til hringrásar í Evrópu, t.d. aukið hlutfall endurvinnslu og tilkomu samnýtingarhagkerfis og annarra hringlaga viðskiptalíkana.
Með hringrásartíðninni 11,5 % árið 2022 notar Evrópa hærra hlutfall af endurunnum hráefnum en önnur heimssvæði. Hins vegar hafa framfarir innan ESB verið hægar og við erum enn langt frá markmiðinu um að tvöfalda hringrásarhraða sambandsins fyrir 2030.
Með mati á árangri í átt að núverandi hringlaga áætlun kemur fram í skýrslu Umhverfisstofnunar Evrópu að litlar eða miðlungs líkur séu á að markmiðum áætlunarinnar verði náð á næstu árum.
Skýrslan segir hins vegar að margar stefnur hringrásarhagkerfisins eru enn tiltölulega nýjar og sumar hafa ekki enn verið settar upp að fullu á landsvísu. Ennfremur tekur það tíma fyrir áhrif þessara aðgerða að koma fram í formi breyttra viðskiptamódela, neysluþróunar og, að lokum, mynstri auðlindanotkunar. Hins vegar er hægt að gera meira til viðbótar við innleiðingu núverandi stefnu.
Í skýrslunni er einnig fjallað um mögulegar framtíðaraðgerðir, svo sem að setja markmið og stuðla að betri endurvinnslu þar sem efni halda upprunalegu hlutverki og virði sínu sem lengst. Þetta myndi stuðla að sjálfstæði auðlinda innan ESB og draga úr innflutningi þeirra. Auk þess að innleiða meginreglur um visthönnun er einnig mikilvægt að auka hringrás með því að hámarka notkun og líftíma vara með endurnotkun, viðgerðum og endurframleiðslu.
Einnig ætti að huga sérstaklega að hagrænu hráefnaframboði þannig að hvatar og verð á hráefnum taki tillit til umhverfisáhrifa þeirra og þeir eigi greiðari leið til endurinnflutnings í hagkerfið.
Til grundvallar þessara breytinga er þörf á að draga úr vörunotkun frá núverandi ósjálfbærum stigum, en núverandi þróun innan ESB er því miður að færast í gagnstæða átt. Það eru fjölmörg tækifæri fyrir framtíðarstefnu ESB til að vera upplýst með áframhaldandi rannsóknum á eftirspurn neytenda um hvernig á að breyta hegðun neytenda, auk þess að fella inn meginreglur um umskipti í framtíðaraðgerðum.
For references, please go to https://eea.europa.eu./is/highlights/nu-er-timi-til-ad or scan the QR code.
PDF generated on 22 Nov 2024, 07:58 PM
Engineered by: Vefteymi EEA
Software updated on 26 September 2023 08:13 from version 23.8.18
Software version: EEA Plone KGS 23.9.14
Skjalaaðgerðir
Deila með öðrum