All official European Union website addresses are in the europa.eu domain.
See all EU institutions and bodiesGerðu eitthvað fyrir plánetuna okkar, prentaðu einungis þessa síðu ef þú þarft þess. Jafnvel lítil aðgerð getur haft gríðarleg áhrif ef milljónir manna gera hið sama!
All official European Union website addresses are in the europa.eu domain.
See all EU institutions and bodiesLoftmengun er staðbundin, sam-evrópskt og hnattrænt málefni. Loftmengunarefni sem sleppt er í einu landi geta flust til í lofthjúpnum og stuðlað að eða leitt til slæmra loftgæða annars staðar.
Svifryk, niturtvíoxíð og óson við jörð eru nú almennt viðurkennd sem þau þrjú mengunarefni sem hafa mest áhrif á heilsu manna. Langtíma- og hámarkssnerting við þessi mengunarefni valda misalvarlegum áhrifum, allt frá því að draga úr virkni öndunarfæra til ótímabærs dauða. Um 90% borgaríbúa í Evrópu verða fyrir útsetningu mengunarvalda í styrkleika, sem er meiri en loftgæðastigið, sem talið er skaðlegt heilsunni. Til dæmis er talið að fínt svifryk (Svifryk2.5) í lofti minnki lífslíkur í ESB um meira en átta mánuði. Mengunarefnið benzo(a)pýren er krabbameinsvaldur, sem auknar áhyggjur beinast að, og er styrkleiki þess hærri en heilsuverndarmörk á fjölmörgum þéttbýlum svæðum, einkum í Mið- og Austur-Evrópu.
Loftmengun er slæm fyrir heilsu manna og vistkerfisins. Stór hluti manna býr í óheilbrigðu umhverfi samkvæmt núgildandi stöðlum. Til þess að komast á sjálfbæra braut þarf Evrópa að sýna metnað að ganga lengra en núverandi löggjöf.
Hans Bruynincky, framkvæmdastjóri EEA
Loftmengun skaðar einnig umhverfi okkar.
Loftgæði í Evrópu hafa ekki alltaf batnað í samræmi við almenna minnkun losunar mengunarvalda af mannavöldum. Ástæður þessa eru flóknar:
Því er enn þörf markvissrar viðleitni við að draga úr losun til að vernda frekar heilsu manna og umhverfið í Evrópu.
Loftmengun á sér ýmsar uppsprettur, bæði af mannavöldum og náttúrulegar:
Langtímamarkmið ESB er að ná loftgæðastigi sem hefur ekki í för með sér óviðunandi áhrif á og áhættu fyrir heilsu manna og umhverfi. ESB beitir sér á mörgum sviðum til að draga úr snertingu fólks við loftmengun: með löggjöf; samvinnu við starfsgreinar sem valda loftmengun sem og alþjóðleg, innlend og svæðisbundin yfirvöld og frjáls félagasamtök; og rannsóknum. Stefna ESB miðar að því að draga úr snertingu við loftmengun með því að draga úr losun og setja mörk og markgildi fyrir loftgæði. Síðla árs 2013 samþykkti framkvæmdastjórn Evrópusambandsins tillögupakka um hrein loftgæði þar á meðal nýjar ráðstafanir til þess að draga úr loftmengun.
Frekari upplýsingar um loftmengunarstefnu Evrópu
Umhverfisstofnun Evrópu er loftmengunargagnamiðstöð Evrópusambandsins; hún styður framkvæmd laga Evrópusambandsins sem tengist losun lofttegunda og loftgæðum. Umhverfisstofnun Evrópu tekur einnig þátt í mati á loftmengunarstefnu ESB og þróun langtímastefnu til að bæta loftgæði í Evrópu.
Starf Umhverfisstofnunar Evrópu beinist að því að:
Frekari upplýsingar um starfsemi Umhverfisstofnunar Evrópu
Umhverfisstofnun Evrópu hefur gefið út safn loftmengunartengla
For references, please go to https://eea.europa.eu./is/themes/air/intro or scan the QR code.
PDF generated on 23 Nov 2024, 12:53 AM
Engineered by: Vefteymi EEA
Software updated on 26 September 2023 08:13 from version 23.8.18
Software version: EEA Plone KGS 23.9.14
Skjalaaðgerðir
Deila með öðrum