All official European Union website addresses are in the europa.eu domain.
See all EU institutions and bodiesGerðu eitthvað fyrir plánetuna okkar, prentaðu einungis þessa síðu ef þú þarft þess. Jafnvel lítil aðgerð getur haft gríðarleg áhrif ef milljónir manna gera hið sama!
Press Release
Skýrslan, „Annual European Community Greenhouse gas inventory 1990þ2005 and inventory report 2007“, var send til skrifstofu rammaráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar (UNFCCC) sem opinbert framlag Evrópubandalagsins. UE sendi frá sér meginbráðabirgðaniðurstöður skýrslunnar í maí 2007 vegna almenns og stjórnmálalegs áhuga á loftslagsbreytingum. Lokaútgáfa þessarar skýrslu var send til UNFCCC þann 27. maí 2007.
Þýskaland, Finnland og Holland áttu stærstan skerf í ESB-15 heildar-minnkuninni (sjá töfluna í athugasemdum til ritstjórans). Minnkun CO2-losunar stýrði heildarminnkun gróðurhúsalofttegunda þessara landa.
Önnur ESB-15 lönd sem minnkuðu losun milli áranna 2004 og 2005 eru: Belgía, Danmörk, Frakkland, Lúxemborg, Svíþjóð og Bretland.
[1] Grunnár mælinga flestra gróðurhúsalofttegunda hjá Evrópusambandslöndunum 15 samkvæmt Kýótó-bókuninni er 1990 en nær öll aðildarríki nota árið 1995 sem grunnár flúorlofts eða “F-lofts”.
Aðalgeirarnir sem stuðla að minnkun heildarlosunar frá 2004 til 2005 í ESB-15 löndunum rafmagns- og hitaframleiðsla í opinberum geira, heimilisrekstur og þjónusta, og vegasamgöngur.
CO2-losun vegna rafmagns- og hitaframleiðslu í opinberum geira minnkaði um 0,9% (-9,6 milljónir tonna) sem stafar aðallega af minni þörf fyrir að nota kol.
CO2-losun vegna heimila og þjónustu minnkaði um 1,7% (7,0 milljónir tonna). Mikilvæg minnkun losunar vegna heimila og þjónustu átti sér stað í Þýskalandi, Bretlandi og Hollandi. Ein aðalástæðan fyrir þeirri minnkun var hlýrra veðurfar (mildari vetur) samanborið við árið á undan.
CO2-losun vegna vegasamgangna minnkaði um 0,8% (6 milljónir tonna). Þetta má að mestu leyti rekja til Þýskalands og er vegna aukinnar notkunar dísilknúinna bíla, áhrifa umhverfisskatts og eldsneytis sem keypt var utan Þýskalands (ferðamannaeldsneyti).
Spánn jók heildarlosun gróðurhúsalofttegunda mest frá 2004 og 2005 (sjá töfluna í athugasemdum til ritstjórans).
Á Spáni varð aukning á losun gróðurhúsalofttegunda um 3,6%, eða samsvarandi 15,4 milljónum tonna af CO2, aðallega vegna hita- og rafmagnsframleiðslu í opinberum geira. Ástæðan er aukning rafmagnsframleiðslu frá jarðefnavarmarafstöðvum (17%) og minnkun á framleiðslu rafmagns í vatnsaflsstöðvum (-33%).
Önnur ESB-15 lönd þar sem losunaraukning varð árin 2004 og 2005 eru: Austurríki, Grikkland, Írland, Ítalía og Portúgal.
GHL-gagnasafn Umhverfisstofnunar Evrópu er gagnvirkt tæki sem veitir aðgengilegan vefaðgang að aðalgögnum sem finna má í stöðuskýrslu Evrópubandalagsins um gróðurhúsalofttegundir. GHL-gagnasafnið gerir notandanum kleift að skoða og rannsaka losunartilhneigingu í aðal- og undirgeirum. Einnig auðveldar það samanburð milli losunar einstakra landa og geira. Að auki gerir GHL-gagnasafnið myndvinnslu mögulega sem og niðurhal skráa með aðal losunartölum.
Þessi skýrsla er opinbert framlag Evrópubandalagsins til UNFCCC um gróðurhúsaefnalosun innanlands fyrir tímabilið 1990 – 2005. Innanlands í þessu sambandi vísar til losunar innan svæðis Evrópusambandsins. Í henni eru upplýsingar um GHL-losun ESB-15 og ESB-27. Hún skýrir einnig nákvæmlega aðferðina sem beitt er til að ákvarða losun í Evrópusambandslöndunum og framkvæma gæðaprófun.
UE ber árlega ábyrgð á gerð og útgáfu þessarar skýrslu og notast við upplýsingar frá ríkisstjórnum einstakra ríkja með tilliti til GHL-eftirlitsáætlunar Evrópubandalagsins.
Á árinu 2005 náði skiptiáætlun Evrópusambandsins varðandi losun (SEL) til u.þ.b. 47% heildar-CO2-losunar og u.þ.b. 39% heildarlosunar gróðurhúsalofts hjá ESB-15. SEL náði til u.þ.b.49% heildar-CO2-losunar og 41 % heildarlosunar gróðurhúsalofts hjá ESB-25. Á heildina litið hafa SEL-upplýsingar verið notaðar af aðildarríkjum Evrópusambandsins sem innlegg til útreiknings á heildar-CO2-losun vegna orku- og iðnaðarframkvæmdageiranna í þessari skýrslu. Engu að síður eru ítarlegar niðurstöður á framlagi SEL til heildar-CO2-losunar í einstökum geirum og undirgeirum hvorki til fyrir ESB-15 né ESB-25.
ESB-15 ríkin hafa það sameiginlega markmið samkvæmt Kýótó-bókuninni að draga úr losun heildargróðurhúsalofttegunda um 8% miðað við grunnárið. ESB-27 ríkin hafa ekki
sameiginlegt Kýótó-markmið. Opinber skýrslugjöf um losun, sem tryggir að farið sé eftir Kýótó-bókuninni, hefst ekki fyrr en 2010 – þegar tilkynnt verður um losun fyrir
árið 2008.
Þangað til er þessi skýrsla sú sem mestu máli skiptir fyrir Evrópusambandið og er áreiðanlegust hvað varðar upplýsingar um losun gróðurhúsalofttegunda. Unnt er að nota
hana til að rekja frammistöðu Evrópusambandsins varðandi minnkun losunar gróðurhúsalofts (þ.e. innan svæðis þess) í átt að Kýótó-markmiðunum. Aðilum Kýótó-bókunarinnar er
leyft að nota kolefnisbindingu auk svokallaðra „sveigjanlegra aðferða“ til að minnka losun gróðurhúsaáhrifa frekar utan ríkjasvæða sinna - sem viðbót við minnkun heima
fyrir.
Þess vegna eru aðgerðir heima fyrir grundvallaraðferðir til að mæta Kýótó-markmiðunum. Þessi stöðuskýrsla bendir til að losun GHL innan ríkja hafi minnkað um u.þ.b. 2,0%
samanborið við grunnár Kýótó-bókunarinnar.
Tafla 1: Losun gróðurhúsalofttegunda samsvarandi CO2 (að frátaldri kolefnisbindingu) og Kýótó-bókunarmarkmið fyrir árin 2008–12
ESB-27: Austurríki, Belgía, Búlgaría, Kýpur, Tékkland, Danmörk, Eistland, Finnland, Frakkland, Þýskaland, Grikkland, Ungverjaland, Írland, Ítalía, Lettland, Litháen, Lúxemborg, Malta, Holland, Pólland, Portúgal, Rúmanía, Slóvakía, Slóvenía, Spánn, Svíþjóð, Bretland.
ESB-15: Austurríki, Belgía, Danmörk, Finnland, Frakkland, Þýskaland, Grikkland, Írland, Ítalía, Lúxemborg, Holland, Portúgal, Spánn, Svíþjóð, Bretland
Til að skoða skýrsluna í heild sinni, sjá:skýrsla
Fyrir algengar spurningar um GHL-stöðuskýrslu, sjá: algengar spurningar
Til að nálgast GHL-gögn, sjá: GHL-gagnasafn Umhverfisstofnunar Evrópu:
For references, please go to https://eea.europa.eu./is/pressroom/newsreleases/losun-grodurhusalofttegunda-i-evropusambandslondum-minnkar-a-arinu-2005 or scan the QR code.
PDF generated on 22 Dec 2024, 10:43 PM
Engineered by: Vefteymi EEA
Software updated on 26 September 2023 08:13 from version 23.8.18
Software version: EEA Plone KGS 23.9.14
Skjalaaðgerðir
Deila með öðrum