All official European Union website addresses are in the europa.eu domain.
See all EU institutions and bodiesGerðu eitthvað fyrir plánetuna okkar, prentaðu einungis þessa síðu ef þú þarft þess. Jafnvel lítil aðgerð getur haft gríðarleg áhrif ef milljónir manna gera hið sama!
News
Sem samfélag ættum við ekki að samþykkja kostnaðinn við loftmengun. Með djörfum ákvörðunum og snjöllum fjárfestingum í hreinni samgöngum, orku og landbúnaði, getum við tekist á við mengun og bætt lífsgæði okkar. Það er uppörvandi að sjá að margar evrópskar ríkisstjórnir og sérstaklega borgir sýna forystu í að vernda heilsu fólks með því að bæta loftgæði. Hreint loft tilheyrir öllum, líka þeim sem búa í borgum.
Hans BRUYNINCKX, Forstrjóri Umhverfisstofnunar Evrópu
„Loftgæði í Evrópu 2017“ skýrsla Umhverfisstofnunar Evrópu sýnir uppfærða greiningu á loftgæðum og áhrifum þeirra, byggt á opinberum gögnum frá meira en 2.500 mælistöðvum um alla Evrópu árið 2015. Skýrslan var birt af Umhverfisstofnun Evrópu á Evrópuviku svæða og borga 2017.
Gögnin sýna að loftgæði í Evrópu eru að batna smátt og smátt, þökk sé fyrrum og núverandi stefnum og tækniþróun. Engu að síður hefur mikil loftmengun enn markverð áhrif á heilsu Evrópubúa, og svifryk, köfnunarefnistvíoxíð (NO2) og óson við yfirborð jarðar valda mestum skaða.
Samkvæmt skýrslunni bar magn fíngerðs svifryks (<2,5μm) ábyrgð á áætluðum 428.000 ótímabærum dauðsföllum í 41 Evrópulöndum árið 2014, en um 399.000 þeirra voru í aðildarríkjum ESB. Slæm loftgæði hafa líka umtalsverð efnahagsleg áhrif, auka lækniskostnað, draga úr framleiðni starfsmanna, og skemma jarðveg, uppskeru, skóga, vötn og ár.
„Sem samfélag ættum við ekki að samþykkja kostnaðinn við loftmengun. Með djörfum ákvörðunum og snjöllum fjárfestingum í hreinni samgöngum, orku og landbúnaði, getum við tekist á við mengun og bætt lífsgæði okkar,“ sagði Forstrjóri Umhverfisstofnunar Evrópu, Hans Bruyninckx. „Það er uppörvandi að sjá að margar evrópskar ríkisstjórnir og sérstaklega borgir sýna forystu í að vernda heilsu fólks með því að bæta loftgæði. Hreint loft tilheyrir öllum, líka þeim sem búa í borgum.“
Skýrsla þessa árs beinir líka sjónum að landbúnaði, sem er veigamikill loftmengunarvaldur og losar mikið af gróðurhúsalofttegundum. Ýmiskonar aðgerðir, þar með taldar tæknilegar og fjárhagslega hagkvæmar ráðstafanir, eru tiltækar til að draga úr losun frá landbúnaði en hafa enn ekki verið teknar upp í þeirri stærðargráðu sem þarf, segir í skýrslunni.
(1) Borgarbúar ESB sem verða fyrir skaðlegu magni loftmengunar á árunum 2013-2015 samkvæmt:
(2) Takmörkum/markgildum ESB
(3) Viðmiðum WHO
Áætluð heilbrigðisáhrif í þessari skýrslu eru þau sem skýrast af váhrifum af völdum svifryks (<2,5μm), NO2 og O3 í Evrópu árið 2014. Þessar áætlanir eru byggðar á upplýsingum um loftmengun, lýðfræðilegum gögnum og sambandinu á milli váhrifa vegna magns mengunarvalda og skilgreindra heilbrigðisáhrifa.
Ótímabær dauðsföll eru skilgreind sem dauðsföll sem gerast áður en manneskja nær væntum aldri, miðað við venjulegar lífslíkur eftir landi og kyni. Ótímabær dauðsföll eru talin vera afstýranleg ef hægt er að útrýma ástæðu þeirra.
For references, please go to https://eea.europa.eu./is/highlights/betri-loftgaedi-i-evropskum-borgum or scan the QR code.
PDF generated on 23 Dec 2024, 04:09 AM
Engineered by: Vefteymi EEA
Software updated on 26 September 2023 08:13 from version 23.8.18
Software version: EEA Plone KGS 23.9.14
Skjalaaðgerðir
Deila með öðrum