All official European Union website addresses are in the europa.eu domain.
See all EU institutions and bodiesGerðu eitthvað fyrir plánetuna okkar, prentaðu einungis þessa síðu ef þú þarft þess. Jafnvel lítil aðgerð getur haft gríðarleg áhrif ef milljónir manna gera hið sama!
En jarðvegur hefur orðið fyrir stöðugri, oft stríðandi eftirspurn, frá samfélagi manna. Geta jarðvegsins til að standa undir þjónustu við vistkerfið — hvað varðar matvælaframleiðslu, sem uppspretta líffræðilegs fjölbreytileika og sem stýriþáttur gastegunda, vatns og næringarefna — er því undir þrýstingi. Hlutfall landhleðslu, landeyðingar, hnignunar lífrænna efna og mengun dregur úr viðkomugetu eða getu jarðvegarins til að laga sig að þeim breytingum sem hann verður fyrir.
Á einnig mannsævi getur jarðvegur því fallið í þann flokk að vera óendurnýjanleg auðlind. Við sem samfélag þurfum að tryggja sjálfbærni hans til að njóta þess sem hann hefur upp á að bjóða. Þrátt fyrir fjölbreytta starfsemi sem byggir að lokum á jarðvegi er engri ESB löggjöf um jarðveg til að dreifa. Fram að þessu, ólíkt vatni og andrúmslofti, er fjallað um jarðveg með óbeinum hætti eða í stefnum fyrir mismunandi atvinnugreinar: landbúnaður og skógrækt, orkumál, vatn, loftslagsbreytingar, náttúruvernd, úrgangur og íðefni. Skorturinn á samfelldri jarðvegsstefnu á vettvangi Evrópusambandsins birtist einnig í skortinum á samræmdum upplýsingum um jarðveg.
Þrátt fyrir það hefur árangur náðst á undanförnum tíu árum þegar kemur að stefnumótun og samræmdri öflun upplýsinga. Stefna framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um jarðvegsmál frá árinu 2006 undirstrikar þörfina á því að vernda virkni jarðvegsins vegna mikilvægis hans í sjálfbærri þróun. Á alþjóðlegum vettvangi er fjallað um jarðvegsmál undir hinu víðfeðma hugtaki landhnignun (sem fram að þessu takmarkast við þurrlendissvæði) í samningi Sameinuðu þjóðanna gegn eyðimerkurmyndun (UNCCE). Nýlega var hugmyndin um að vernda jarðvegsvirkni felld inn í hugtakið um hlutleysi jarðvegshnignunar í sjálfbæru þróunarmarkmiðunum (e. Sustainable Development Goals, SDG) sem allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna samþykkti árið 2015. SDG innihalda einnig markmið um jarðvegsgæði, jarðvegsmengun, stjórnun íðefna og úrgangs. Framkvæmd SDG kann að reynast mikilvægur þáttur í evrópskum aðgerðum til verndar jarðveginum. Tilraunir til að samræma og staðla jarðvegsupplýsingar fyrir almenning hafa gengið ágætlega bæði alþjóðlega og í Evrópu.
EEA framkvæmir möt á grundvelli vísbendinga um ýmiss konar landnotkun og jarðvegsmál í þemaklasanum fyrir landnotkun og jarðvegsvísum (LSI sett). LSI settið samanstendur af vísum um landtöku, vatnsheldni, stjórnun mengunarstaða, jarðvegsraka, landeyðingu og lífrænt kolefni í jarðvegi. Ráðgert er að búa til vísa um uppbrot og landendurvinnslu. Copernicus landvöktunarþjónustan auðveldar reglulega uppfærslu á mörgum af þessum vísum. EEA gefur einnig út sérstakar matsgerðir um ákveðin jarðvegstengd málefni, eins og nýtingu jarðvegsauðlinda í þéttbýli eða næringarefni í jarðvegi og málmálag á umhverfið.
EEA á í samstarfi við samstarfsaðila frá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins (einkum sameiginlegu rannsóknarmiðstöðina (JRC) og stjórnarsvið umhverfismála), Eionet fulltrúa frá innlendu viðmiðunarmiðstöðinni fyrir jarðvegs- og landnotkun og landnotkunarskipulag og önnur samstarfsnet og sérfræðinga í Evrópu. Alþjóðlegir samstarfsaðilar eru: skrifstofa UNCCD, Global Soil Partnership, Global Land Indicator Initiative (í gegnum búsetunefnd Sameinuðu þjóðanna) og Umhverfisstofnun Sameinuðu þjóðanna.
Starf EEA á þessu málefnasviði hefur verið stutt af viðeigandi Evrópskum málefnamiðstöðvum (ETC) frá árinu 1996; ETC um þéttbýlis- land- og jarðvegskerfi (ETC/ULS), hefur starfað frá árinu 2014 og styður við starf EEA á sviði jarðvegsmála. Árið 2007 var starfsemi á sviði jarðvegsupplýsinga flutt yfir til Evrópsku upplýsingamiðstöðvarinnar um jarðvegsmál hjá JRC.
For references, please go to https://eea.europa.eu./is/themes/soil/intro or scan the QR code.
PDF generated on 22 Nov 2024, 07:38 PM
Engineered by: Vefteymi EEA
Software updated on 26 September 2023 08:13 from version 23.8.18
Software version: EEA Plone KGS 23.9.14
Skjalaaðgerðir
Deila með öðrum