næsta
fyrri
atriði

News

Stofnanir ESB: meiri vinnu þarf til að gera efni örugg og sjálfbær

Breyta tungumáli
News Útgefið 15 May 2024 Síðast breytt 15 May 2024
3 min read
Photo: © Urszula Frydrych, WaterPIX/EEA
Umskiptin í átt að öruggari og sjálfbærari efnum miðar vel áfram á sumum sviðum en á öðrum eru þau rétt að hefjast. Þetta eru niðurstöður úr sam-Evrópsku mati á vegum Umhverfisstofnunar Evrópu (EEA) og Efnastofnunar Evrópu (ECHA) sem birt var í dag á orsökum og áhrifum efnamengunar. Þetta viðmiðunarmat er fyrsta sinnar tegundar og niðurstöður þess sýndu að þörf er á meiri enn vinnu til að draga úr áhrifum skaðlegra efna á heilsu manna og á umhverfið.

Fjöldi iðnaðarefna sem skoðaðir eru samkvæmt efnalöggjöf ESB til að ákvarða öryggi þeirra hefur aukist verulega. Yfirvöld hafa nú mun betri þekkingu á hættulegum eiginleikum efna sem eru notuð inann Evrópusambandsríkja, sem leiðir til fjölda aðgerða til að lágmarka og hafa eftirlit með hættum ýmissa efnaflokka. 

Samkvæmt sameiginlegri skýrslu EEA-ECHA um vísasafn ESB fyrir kemísk efni er heildarnotkun skaðlegustu efnanna (einkum þeirra sem eru krabbameinsvaldandi, stökkbreytandi og æxlunareitrandi) enn að aukast en þó hægar en heildarvöxtur á efnamarkaði. Þrýstingur hefur aukist til að koma í veg fyrir notkun svokallaðra áhyggjuefna og til að innleiða meginreglur um öruggan og sjálfbæran rammalöggjöf. 

Tryggja þarf á skilvirkari hátt að neysluvörur innihaldi ekki skaðlegustu efnin, t.d. efni sem eru innkirtlatruflandi, hafa neikvæð áhrif á hormónakerfið, eru þrávirk og safnast upp í lífverum, eru eitruð eða skapa hættu löngu eftir að notkun þeirra er hætt. 

Þörf er á frekari gögnum og upplýsingum til að skilja betur váhrif þessara skaðlegustu efna á menn og umhverfið sem og áhrif þeirra almennt. Skýrar vísbendar eru um að umskiptingin yfir í örugg og sjálfbær efni verði að halda áfram og ætti jafnvel að ýta enn frekar undir þau umskipti.

 

Heilsa evrópskra borgara og umhverfis okkar ætti að vera forgangsverkefni og þetta viðmiðunarmat sýnir að þó að efni hafi jákvæðu hlutverki að gegna í lífi okkar, er brýn þörf á frekari aðgerðum til að takast við þær hættur sem stafa af notkun óöruggra og ósjálfbærra efna. Þekkingin sem myndast í þessu mati mun hjálpa okkur að skipta yfir í örugg og sjálfbær efni í framtíðinni.



Leena Ylä-Mononen
Framkvæmdastjóri EEA

 

Við þurfum að flýta fyrir umskiptum í átt að öruggum og sjálfbærum efnum. Aðgerðir yfirvalda og iðnaðar hafa stuðlað að því að lágmarka og hafa eftirlit með hættu af völdum hættulegra efna. En við þurfum að auka enn frekar þekkingu á efnum og styðja við áhættustýringu efnaflokka til að vernda fólk og umhverfið.



Sharon McGuinness
Framkvæmdastjóri ECHA

 

Skýrslan byggir á safni 25 lykilvísa, sem einnig eru birtar í dag, og veita yfirsýn yfir orsakir og áhrif efnamengunar í Evrópu. 

Vísarnir verða uppfærðir reglulega til að fylgjast með efnamengun og mæla skilvirkni evrópskrar efnalöggjafar. Skýrslan veitir heildarmat á framförum samkvæmt efnastefnu ESB um sjálfbærni í átt að eiturefnalausu umhverfi (EU’s chemicals strategy for sustainability towards a toxic-free environment; CSS).

 

Helstu niðurstöður 

  • Umskiptin í átt að öruggari og sjálfbærari efnum miðar vel áfram á sumum sviðum en á öðrum eru þau rétt að hefjast.
  • Aðgerðir yfirvalda og iðnaðar hafa stuðlað að því að lágmarka og hafa eftirlit með hættu sem stafar af ýmsum flokkum hættulegra efna. Áfram er unnið að því að auka þekkingu á hættum af völdum efna og styðja við áhættustjórnun þar sem þörf krefur.
  • Fyrirliggjandi gögn benda til þess að litlar vísbendingar séu um framfarir í því að útrýma áhyggjuefnum úr úrgangi og endurunnum hráefnum. Þetta er hindrun á umskiptum í átt að meiri hringrásarhagkerfi.
  • Losun tiltekinna efna í vatn og andrúmsloft hefur minnkað í kjölfar sértækra reglugerða ESB (t.d. um losun iðnaðar) og alþjóðlega aðgerða, en frekari aðgerða er þörf til að ná styrk sem er ekki skaðlegur heilsu manna og umhverfinu. Losun frá iðnaði leiðir enn til mikils kostnaðar hvað varðar skaða á heilsu manna og vistkerfa.
  • Lífvöktun manna býður upp á tækifæri til að skilja útsetningu manna fyrir efnum frá mörgum uppsprettum og þar með heilsufarsáhættu sem tengist efnamengun. Þannig er lífvöktun lykiltól til að mæla skilvirkni efnalöggjafar sem miðar að því að vernda heilsu manna og umhverfið.

 

Vísar ESB um efni

Stefna ESB í efnamálum miðar að því að takast á við þá áskorun að framleiða og nota kemísk efni til að mæta samfélagslegum þörfum, jafnframt því að virða mörk plánetunnar og komast hjá skaða á mönnum og umhverfið. Áætlun ESB um sjálfbærni í efnamálum (CSS) stuðlar að því að ná þessari framtíðarsýn með fjölda aðgerða, þar á meðal aðgerðum til að styðja við nýsköpun fyrir örugg og sjálfbær efni, styrkja vernd á heilsu manna og umhverfisins, einfalda og styrkja lagaumgjörð um efni og byggja upp alhliða þekkingargrunn til að styðja við gagnreynda stefnumótun í þessu samhengi. 

EEA, ECHA og framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hafa þróað lykilvísa til að styðja við markmið áætlunarinnar. 

Hægt er að nálgast mælaborð á heimasíðu verkefnisins ásamt vísunum.

Frekari upplýsingar


Fréttastofa EEA                                                   Fréttastofa EEA
Constant Brand                                                    Antti Kaartinen
+45 2174 1872                                                      +45 2336 1381
constant.brand@eea.europa.eu                        antti.kaartinen@eea.europa.eu


Fréttastofa ECHA
Tiiu Bräutigam
+358 40 506 9006
press@echa.europa.eu

Permalinks

Geographic coverage

Temporal coverage

Topics